ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Fangar sauma varir saman til að mótmæla

Þjást fyrir réttlætið
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:18 › 30. janúar 2012
Einn fanganna sem saumuðu varir sínar saman til að mótmæla slæmum aðbúnaði í fangelsum í Kirgisistan.

Einn fanganna sem saumuðu varir sínar saman til að mótmæla slæmum aðbúnaði í fangelsum í Kirgisistan. Mynd Sky.

Rúmlega þúsund fangar í Kirgisistan hafa saumað varir sínar saman eftir tíu daga hungurverkfall til að mótmæla slæmum aðbúnaði í fangelsinu.

Á vef bresku fréttastofunnar Sky er greint frá þessu máli en þar eru fangarnir sagðir hafa mótmælt á ýmsa vegu í gegnum árin.
Fangarnir er sagðir hafa saumað varir sínar saman með grófgerðum þræði og en passa að sauma varirnar ekki það þétt saman að þeir geti ekki drukkið vökva.

Tuttugu og tveggja ára gamall fangi, sem gaf aðeins upp nafnið Yevgeny, sagðist hafa saumað varir sínar saman til þess að þjást fyrir réttlætið.

Yfirvöld fangelsisins neita þó að aðbúnaður fanga sé slæmur í fangelsinu. „Þetta er ekki hótel eða sumardvalarstaður. Þetta er fangelsi,“ sagði yfirmaður fangelsisins.

Einn fanganna sem er í hungurverkfallinu var þó ekki sammála fangelsismálayfirvöldum. „Við reyndum að skreyta klefana okkar en þeir hentu reyksprengjum inn til okkar og börðu okkur. Þess vegna sveltum við okkur og vonumst eftir að réttlætið nái fram að ganga.“

Í Kirgisistan búa 5,3 milljónir manna en þar eru 7600 einstaklingar í fangelsum þar sem valdamikil glæpagengi ráða ríkjum.
Tæplega fjögur hundruð fangar saumuðu varir sínar saman í Zhusupbekov fangelsinu en átta hundruð fangar eru sagðir hafa gert slíkt hið sama í öðrum fangelsum.

Fangelsismálayfirvöld telja þó að einungis glæpasamtök hefðu geta skipulagt slík mótmæli.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?