ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Bílstjóri skólarútu fékk hjartaáfall undir stýri

Bjargaði samnemendum
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 30. janúar 2012
Rumer sýnir hér hvernig hún fór að eftir að bílstjóri rútunnar fékk hjartaáfall.

Rumer sýnir hér hvernig hún fór að eftir að bílstjóri rútunnar fékk hjartaáfall.

Þó að Graceann Rumer sem er sautján ára hafi einungis fengið bílpróf fyrir tveimur vikum brást hún hárrétt við þegar bílstjóri skúlarútu, sem hún var farþegi í, fékk hjartaáfall undir stýri. Rútan var full af unglingum sem voru á leið heim úr skólanum en nemendurnir stunda nám við Calvary Christian-skólann í Philadelphiu. Rútan var á talsverðum hraða þegar atvikið varð og mátti litlu muna að stórslys yrði þar sem lítið hefði þurft til að rútan lenti í árekstri eða endaði utan vegar.

„Ég áttaði mig strax á því að ég þyrfti að gera eitthvað,“ segir Rumer við NBC-fréttastofuna. Í stað þess að fyllast skelfingu stökk hún til þegar hún sá bílstjórann skella í gólfið. Hún kippti í stýrið þar sem rútan stefndi á bíla sem komu á móti. Þar sem fætur bílstjórans voru skorðaðir fastir undir bremsupedalanum gat hún ekki stöðvað bifreiðina strax. Það gekk þó að lokum og að svo búnu ók hún bifreiðinni í öruggt skjól og stöðvaði hana.

„Ég panikkera yfirleitt þegar ég lendi í erfiðum aðstæðum en þetta gerði ég án þess að hugsa,“ segir hún. Rúmlega þrjátíu nemendur voru í rútunni þegar atvikið átti sér stað og slasaðist enginn þeirra. Bílstjórinn, Charles Duncan, lést hins vegar af völdum hjartaáfallsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?