Breskir vísindamenn segja að rannsóknir á áhrifum ofskynjunarsveppa á heilastarfsemi benda til þess að hægt verði mögulega að nota þá fyrir þunglyndismeðferðir.
Tvær aðskildar rannsóknir á psilocybin, virka efninu í töfrasveppum, sýndu að sveppir auka ekki hugarstarfsemi, eins og vísindamennirnir höfðu búist við, heldur deyfa þeir frekar starfsemi á þeim svæðum heilans, sem þunglyndislyf virka einnig á.
„Ofskynjunarlyf eru talin „hugvíkkandi“ efni svo að það hefur almennt verið ályktað að þau auki heilastarfsemi,“ sagði vísindamaðurinn David Nutt frá rannsóknarháskólanum Imperial College London. „En það sem kom á óvart var sú niðurstaða okkar að psilocybin orsakaði því að starfsemin minnkaði á sumum svæðum heilans.“
Í fyrstu rannsókninni fengu 30 sjálfboðaliðar psilocybin í æð á meðan þeir gengust undir ómskoðun (MRI), sem mælir breytingar á heilastarfsemi. Heilastarfsemi minnkaði þar sem þéttustu tengingarnar milli annarra svæða heilans voru staðsettar og margir sjálfboðaliðar greindu frá því að þeim liði eins og sjálfið þeirra væri að breytast.
Önnur rannsóknin sýndi fram á það að psilocybin gerði upprifjun minninga áhrifaríkari.
Vísindamennirnir segja að niðurstöðurnar benda til þess að psilocybin gæti verið notað fyrir sálfræðimeðferðir.
Nutt varaði þó við því að rannsóknirnar væru á byrjunarstigi og að lítill fjöldi fólks hafi átt þátt í þeim. „Við erum ekki að segja að fólk ætti að fara út og borða töfrasveppi. En þetta lyf hefur svo stórbrotin áhrif á heilann að það hlýtur að hafa þýðingu – það hlýtur að segja okkur eitthvað um hvernig heilinn virkar. Svo að við ættum að rannsaka það og komast að því hvort það gæti haft einhver lækningaáhrif.“ sagði hann.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
