ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Mótmælendum Occupy bannað að tjalda í Washington DC

Hafa mótmælt síðan í október
10:04 › 29. janúar 2012
Tjaldbúðirnar í Freedom Plaza almenningsgarðinum.

Tjaldbúðirnar í Freedom Plaza almenningsgarðinum. reuters

Mótmælendum Occupy-hreyfingarinnar í Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna verður bannað frá og með morgundeginum að lifa lengur í tjaldbúðum í almenningsgörðunum tveimur þar sem mótmælendurnir hafa haldið sig síðan í október. Í einum garðinum, McPherson Square, búa nú um 100 mótmælendur. McPherson Square og hinn garðurinn, Freedom Plaza, eru báðir í nágrenni við Hvíta húsið.

Mótmælendurnir verða þó ekki gjörsamlega reknir á braut en í báðum görðunum má samt halda „sólarhringsmótmæli“ og „tímabundnar táknrænar byggingar, s.s. tóm tjöld, notuð sem tákn fyrir mótmælin“ mega standa, svo lengi sem enginn búi þar.

Fyrr í mánuðinum kvörtuðu heilbrigðisyfirvöld í Washington DC undan skyndilegri aukningu rottna í tjaldbúðunum tveimur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?