Egill Einarsson Tvisvar kærður fyrir kynferðisbrot. Vænta má niðurstöðu hjá ríkissaksóknara í febrúar.
Egill Einarsson sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hann sagðist saklaus af þessum ásökunum og sagði að ætla mætti að óvildarmenn hans stæðu að baki þessum kærum. Yfirlýsingin var birt í heild sinni á DV.is en sjálfur tók hann það fram að hann sendi hana nauðugur frá sér þar sem sú aðför sem gerð hefði verið að honum og kærustunni væri ekki eðlileg.
DV fékk almannatengilinn Björn S. Lárusson til að rýna í yfirlýsingarnar frá Agli. „Það er vandmeðfarið að reyna að rétta við orðstír með yfirlýsingum. Það eru almenn orð og gerðir sem geta orðið til þess að við fáum orðstír til baka. Sannleikurinn er þar sterkasta vopnið, og reyndar taka almannatenglar sem taka sig alvarlega ekki að sér svona mál, nema vera sannfærðir um að skjólstæðingurinn sé að segja satt og rétt frá. Sönn frásögn af atvikalýsingu þess sem gerðist er vænlegust til árangurs,“ sagði Björn.
„Þegar Egill (eða sá sem aðstoðar hann) velur að leika fórnarlamb fjölmiðla, opinberrar aðfarar eða óskilgreindra afla, þá hefur vænisýkin náð tökum. Menn sjá fjandmenn í öllum hornum þar sem þeir átta sig ekki á því hvernig og hvers vegna þeir eru umfjöllunarefni. Það hefur aldrei verið leið til árangurs að saka aðra um hvernig komið er.“
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
