Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Tuttugu og sex létust þegar eldur kom upp á meðferðarheimili fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga í borginni Líma í Perú í dag.
Eldsupptök eru ókunn en samkvæmt AP-fréttastofunni er talið að allt of margir sjúklingar hafi verið inni þegar eldurinn kom upp. Í ofanálag var meðferðarheimilið ekki með rekstrarleyfi.
Heilbrigðisráðherra Perú sagði í samtali við fjölmiðla á sunnudag að erfiðlega hefði gengið að ná öllum út. Ástæðan hefði verið sú að sjúklingarnir hefðu verið læstir inni líkt og fangar.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
