ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Vill vita hvort Bjarni hafi fengið innherjaupplýsingar

Hæstaréttarlögmaður krefst svara frá Bjarna Benediktssyni
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:24 › 28. janúar 2012
Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sat fund í seðlabankanum ásamt öðrum ráðherrum í febrúar 2008 þar sem Davíð sagði fall bankanna óumflýjanlegt. Nokkrum dögum síðar seldi Bjarni bréf sín í Glitni, faðir hans einnig og Vafningsfléttan fór af stað.

Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sat fund í seðlabankanum ásamt öðrum ráðherrum í febrúar 2008 þar sem Davíð sagði fall bankanna óumflýjanlegt. Nokkrum dögum síðar seldi Bjarni bréf sín í Glitni, faðir hans einnig og Vafningsfléttan fór af stað.

„Fékkst þú í kjölfar fundarins í Seðlabankanum upplýsingar frá flokksbræðrum þínum, þeim Geir H. Haarde eða Árna Mathiesen ellegar öðrum fundargestum, beint eða í gegnum milliliði, um það, sem upplýst hafði verið á fundinum?“ spyr hæstaréttarlögmaðurinn Björn Ólafur Hallgrímsson í opnu bréfi til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í dag.

Bréfið er birt í Morgunblaðinu í dag en fundurinn sem Björn Ólafur vísar til er hinn frægi fundur sem haldinn var 7. febrúar 2007 í Seðlabanka Íslands þar sem Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, mun hafa greint Geir, Árna og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og fleirum frá því að fall bankanna yrði ekki umflúið.

Björn Ólafur rifjar upp að miklar hræringar hafi orðið í íslensku viðskiptalífi í kjölfar fundarins. Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, flutti gríðarlega skuldir sína við Kaupþing yfir í einkahlutafélag daginn eftir fundinn. Raunar hafi verið stofnuð fleiri einkahlutafélög eftir þennan fund en á nokkrum öðrum tíma. „En félög þessi mörg hver virtust stofnuð eingöngu til undanskots fjármuna sem flóttaleið stofnenda frá persónulegum ábyrgðum og skuldbindingum.

Þá bendir Björn Ólafur á að vissar fjármálahræringar tengdar félaginu Vafningi ehf. hafi orðið sem Bjarni kom að líkt og DV fjallaði fyrst fjölmiðla um og Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifar um í helgarblaði DV sem vakið hefur nokkra athygli.

Björn Ólafur rifjar einnig upp annað mál sem DV vakti athygli á en að nokkru eftir fundinn í seðlabankanum 7. febrúar 2008 hafi Bjarni selt hlutabréf sín í Glitni fyrir um 126 milljónir króna. Sama hafi faðir Bjarna gert fyrir 850 milljónir króna nokkrum dögum eftir það.

„Ég bið þig að leiðrétta þessar upplýsingar fjölmiðlanna a.m.k. hvað þig varðar, ef þú telur þær rangar,“ bætir hæstaréttarlögmaðurinn við.

Hann spyr síðan Bjarna, og væntir svarbréfs á síðum Morgunblaðsins, hvort hann hafi fengið upplýsingar um efni fundarins í í Seðlabanka Íslands.

„Ef svo var, þá óska ég jafnframt eftir að fá að vita hvenær það var, og hvort það hafi verið á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins eða á öðrum vettvangi starfa þinna sem þingmaður og loks hvort þú hafir miðlað vitneskju þinni til annarra.“

Björn Ólafur vonar að Bjarni svari enda viti hann til þess að marga langi að fá nánari upplýsingar frá formanni Sjálfstæðisflokksins hvað þessa atburðarrás varðar.

Sjá einnig:

„Skrifaði formaður Sjálfstæðisflokksins undir fölsuð skjöl?“

Bjarni Ben seldi bréf sín í Glitni í febrúar 2008

Bjarni flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá saksóknara

Bjarni Ben í braski: Veðsetti bréfin í Vafningi - MYNDIR



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.