ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Sendu þúsund sokkapör til Norður-Kóreu

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
20:31 › 28. janúar 2012

Þúsund sokkapör voru send yfir landamæri Suður-Kóreu til nágranna sinna í norðri með blöðrum í dag. Tilgangurinn er að veita einhverjum norður-kóreskum íbúum tækifæri á að halda á sér hita eða hreinlega skipta sokkunum fyrir mat.

„Við viljum bara að fólkið í Norður-Kóreu fari í hlýja sokka yfir frosna fæturna,“ sagði talsmaður hópsins sem sá um að útbúa sendinguna. „Hlýir sokkar eru óalgengir og er hægt að skipta þeim fyrir peninga í Norður-Kóreu. Eitt par af sokkum jafngildir um 10 kílóum af korni, sem er nógu mikið fyrir einstakling í heilan mánuð.“

Mikil hungursneið er talin ríkja í Norður-Kóreu, sem er eitt einangraðast land heims. Til marks um neyðina hleyptu orður-kóresk stjórnvöld nýlega sendiferðabílum frá Suður-Kóreu inn fyrir landamærin með neyðarbyrgðir þrátt fyrir að löndin tvö séu á barmi stríðs.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?