„Skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á ástæðum þess að heimili og fyrirtækja veigra sér við að fjárfesta kemur í veg fyrir að við komumst endanlega upp úr kreppuhjólförunum og endum í vítahring Japana,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan flokka, í grein í helgarblaði DV. Lilja fjallar í greininni um skuldastöðu heimila og fyrirtækja og aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Lilja gagnrýnir aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnarinnar í greininni en hún segir meðal annars að skattahækkanir og sértækar skuldaleiðréttingar hafi magnað upp óánægju í samfélaginu. „Eftir hrun ákváðu stjórnvöld að millitekjuhóparnir greiddu fyrir hrunið og að fjármagnseigendur héldu eignum sínum. Frá hruni hefur síðan fjármagnseigendum verðið tryggð besta ávöxtun sem völ er á,“ segir Lilja einnig í greininni.
Áskrifendur DV geta skráð sig inn hér og lesið grein Lilju í heild sinni.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Árni Johnsen sakar ríkisstjórnina um „hryðjuverkaárás“
Björn Valur: Heldur Sigmundur Davíð að fólk sé fífl?
Ítrekaðar tilraunir til sátta um kvótakerfið
Ráðherra skipar félaga sinn stjórnarformann
Árni Páll mátar formannsbrækur
