Bjarni Benediktsson. Hallgrímur segist lítinn mun sjá á málum Bjarna Benediktssonar og Baldurs Guðlaugssonar.
„Það sem kemur hinsvegar ekki fram í ákæru sérstaks er aðkoma Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að þessu sakamáli,“ skrifar rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í athyglisverðri grein þar sem hann tekur saman Vafningsmálið svokallaða í helgarblaði DV undir yfirskriftinni: „Með Vafning um háls til varnar Geir.“
Þar rifjar Hallgrímur upp málið sem sérstakur saksóknari hefur nú ákært Glitnismennina Lárus Welding og Guðmund Hjaltason í.
„Af fjölmörgum fréttum DV um málið vitum við hins vegar að formaðurinn léði þessum lánasamningum undirskrift sína. [...] Ef lánið til Vafnings var í raun framkvæmt þann 12. febrúar en látið líta út fyrir að það hefði verið gert þann 8. febrúar, kviknar spurningin: Skrifaði formaður Sjálfstæðisflokksins undir fölsuð skjöl?“
Þá rifjar hann upp frétt DV þess efnis að vikurnar eftir 12. febrúar 2008 hafi Bjarni Benediktsson selt öll sín hlutabréf í Glitni að andvirði um 120 miljón króna. Hallgrímur segir erfitt að sjá stóran mun á máli Baldurs Guðlaugssonarog sölu Bjarna á Glitnisbréfunum. „Eftir að hann hafði lagt nafn sitt við neyðarbjörgun bankans sem að auki var lögbrot í sjálfri sér.“
Lesa má allt um greiningu Hallgríms á Vafningsmálinu og aðkomu Bjarna Benediktssonar að því í helgarblaði DV.
Áskrifendur geta skráð sig inn og lesið greinina í heild sinni hér fyrir neðan með því að smella á meira.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma