Embætti ríkislögreglustjóra hefur borist ábending um hina óhugnanlegu síðu og er með málið til skoðunar samkvæmt upplýsingum sem DV fékk.
Frumstæð íslensk vefsíða þar sem kynþáttahatur gegn nafngreindum aðilum annar hatursáróður er rekinn er nú til skoðunar hjá lögreglu. Efni síðunnar er afar ógeðfellt og er þar veist með svívirðingum að fólki.
Hýst af rasista í Bandaríkjunum
Síðan sjálf er hýst í Bandaríkjunum og virðist hafa verið stofnuð í júlí í fyrra og síðast uppfærð í október síðastliðnum. Sá sem skráður er fyrir síðunni er bandarískur karlmaður sem af Facebook-síðu hans að dæma er yfirlýstur rasisti. Hann er þó vinafár á samskiptasíðunni en á þó nokkra íslenska vini sem virðast aðhyllast sömu skoðanastefnu. Þessi maður hefur látið til sín taka í athugasemdakerfum íslenskra vefsíðna þar sem hann skrifar athugasemdir á ensku. DV getur ekki staðfest að viðkomandi einstaklingur sé til í raun og veru, eða hvort nafnið og upplýsingar um hann á Facebook séu yfirvarp.
Íslenska rasistasíðan, sem ekki verður nafngreind hér sökum innihalds hennar, hefur gengið manna á milli í netheimum síðustu daga. Hafa nokkrir tekið það að sér að senda ábendingar til embættis ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og innanríkisráðuneytið í von um að síðunni verði lokað.
Þó að vefsíður séu hýstar erlendis eru dæmi um að tekist hafi að loka á vafasamar síður hér á landi með samstarfi yfirvalda og fjarskiptafyrirtækja.
Ekki á okkar vegum
DV hafði samband við Sigríði Bryndísi Baldvinsdóttur, sem í fyrra lýsti yfir stofnun nýs flokks öfgaþjóðernissinna og er meðlimur í rasistasamtökunum Blood and Honor Combat 18. Hún sver af sér vefsíðuna sem hér um ræðir og segir hana ekki á þeirra vegum. Aðspurð kveðst hún ekki vita hver standi fyrir henni.
Meðal hatursáróðurs sem finna má á vefsíðunni er að blökkumenn séu glæpamenn að eðlisfari sem „eiga sér engan stað í siðmenntuðu samfélagi eins og okkar.“
Eru þar nafngreindir látnir einstaklingar sem og aðrir lifandi svívirtir á viðurstyggilegan hátt.
„Landið okkar er í hættu. Hyski þriðja heimsins ræðst inn í landið.“
Þá segir að með því að hleypa innflytjendum til Íslands sé verið að ógna„ þúsund ára líffræðilegri arfleifð.“
Við dreifingu hatursáróðurs sem þessum getur legið allt að tveggja ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum.
DV fékk þær upplýsingar hjá embætti ríkislögreglustjóra nú fyrir stundu að ábendingar almennings um síðuna og efni hennar séu í skoðun og hafi verið sendar áfram til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
