ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.6° 3m/s ESE

Varúð asahláka

Svona verstu vatnstjóni
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
16:49 › 27. janúar 2012
Slökkviliðsmenn að störfum

Slökkviliðsmenn að störfum Mynd Eyþór Árnason

  • Mynd Eyþór Árnason

    Mynd Eyþór ÁrnasonMynd Eyþór Árnason

  • Mynd Eyþór Árnason

    Mynd Eyþór ÁrnasonMynd Eyþór Árnason

Mikilvægt er að hreinsa snjó frá niðurföllum og gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir vatnstjón. Þegar ljósmyndara DV bar að garði við Vesturgötu var slökkvilið að vinna hörðum höndum að því að losa og þurrka upp vatn. Siggi Stormur, veðurfræðingur DV varaði fólk við veðrinu um helgina, en hann spáir asahláku með tilheyrandi hálku og ófærð. Asahláka þýðir snöggar hitabreytingar, sem leiðir af sér að eftir eftir langvarandi snjóa og frostakafla þurfa húsráðendur að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir vatnstjón.

Hlýnandi veður eftir snjó og frostakafla þýðir að vatn safnast fyrir og þegar það gerist verða niðurföll að vera hrein til þess að taka við vatninu. Flest tjón við þessar aðstæður má rekja til þess að ekki var mokað frá niðurföllum, snjór hreinsaður af þökum og svölum. Reynslan sýnir að allt of mörg vatnstjón hefði verið hægt að fyrirbyggja.

Sjóvá hefur því sent frá sér hollráð til þess að húseigendur geti varist tjóni.
Þetta getur þú gert:

Heimili:
Vertu viss um að vatn eigi greiða leið að niðurföllum
Brjótið klaka við niðurföll og mokið snjó frá niðurföllum
Hreinsaðu sand og lauf frá niðurföllum
Hreinsaðu snjó af svölum, en gættu þess að hvorki bílar né fólk sé fyrir neðan
Losaðu klaka og grýlukerti úr þakrennum og af þakskeggi
Í við niðurgang í kjallara og við glugga og veggi á neðri hæð gæti þurft að moka snjó frá.

Fyrirtæki:
Farðu yfir hvort vatns- og hitalagnir virka eðlilega
Þar sem ekki er dagleg starfsemi í húsnæði er mælt með því að eigendur fari yfir húsnæði og umhverfi til að koma í veg fyrir vatnstjón

Sumarhús:
Eftir langa frostakafla þá þarf að huga að vatnslögnum sumarhúsa
Vatn getur frosið í leiðslum og þegar það hlýnar þá er hætta á vatnstjóni vegna frostsprunginna lagna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.