Maðurinn sem hýsir frumstæð íslenska vefsíðu þar sem kynþáttahatur gegn nafngreindum aðilum annar hatursáróður er rekinn heitir Donald Pauley. Af Facebook-síðu hans að dæma er Donald þó vinafár en á þó nokkra íslenska vini. Þessi maður hefur látið til sín taka í athugasemdakerfum íslenskra vefsíðna þar sem hann skrifar athugasemdir á ensku.
DV getur ekki staðfest að viðkomandi einstaklingur sé til í raun og veru, eða hvort nafnið og upplýsingar um hann á Facebook séu yfirvarp. Efni síðunnar er afar ógeðfellt og er þar veist með svívirðingum að fólki. Síðan sjálf er hýst í Bandaríkjunum og virðist hafa verið stofnuð í júlí í fyrra og síðast uppfærð í október síðastliðnum.
Donald Pauley er samkvæmt heimasíðunni Who.is skráður fyrir rasistasíðunni umdeildu. Á Facebook síðu hans kemur einnig fram að hann er eigandi síðunnar og fyrirtækisins gonascent.com en hún er samkvæmt who.is einnig skráð á Donald Pauley og eru sömu símanúmer og netföng skráð fyrir báðum síðunum. DV reyndi að ná sambandi við Donald Pauley en það bar ekki árangur.
Stofnaði stjórnmálaflokk
Á heimasíðu Southern Poverty Law Center er fjallað um Donald Pauly. Á síðunni er birt nærmynd af honum sem meðal annars kemur fram að hann sé einn af þeim sem neita því að helförin hafi átt sér stað.Þar koma fram grófar svívirðingar sem beinast gegn öðrum kynþáttum. Hér má nálgast nærmyndina.
Þar segir hann meðal ananrs: „Ameríka er full og við viljum hreinsa til“.
Í nærmyndinni greinir hann einnig frá því að hann hafi stofnað stjórnmálaflokk sem hvetur innflytjendur til að flytja aftur heim. Flokkurinn sem var stofnaður árið 2002 heitir „Emigration Party of Nevada“ og hefur aðeins eitt yfirlýst markmið; að flytja alla innflytjendur frá Suður-Ameríku, sem búsettir eru í Nevada, aftur til Suður Ameríku. Þar kemur fram að flokkurinn hvetur ekki aðeins til þess að innflytjendurnir verði allir undantekningarlaust fluttir heim, heldur einnig að leyniskyttur verði settar á landamæri Bandaríkjanna.
Íslenska rasistasíðan, sem ekki verður nafngreind hér sökum innihalds hennar, hefur gengið manna á milli í netheimum síðustu daga. Hafa nokkrir tekið það að sér að senda ábendingar til embættis ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og innanríkisráðuneytið í von um að síðunni verði lokað.
Þó að vefsíður séu hýstar erlendis eru dæmi um að tekist hafi að loka á vafasamar síður hér á landi með samstarfi yfirvalda og fjarskiptafyrirtækja
Tengdar fréttir
Rasistasíða rannsökuð: Svívirðingar um lifandi og látna




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma