„Viku áður en ég kom í fyrsta skipti til Íslands hafði ég farið í mjög erfiða fóstureyðingu, en ég var þá komin fimm mánuði á leið.“ segir 31 árs kona sem er fórnarlamb mansals sem leiddist 13 ára gömul út í vændi. Blaðamaður hitti hana í Kvennaathvarfinu.
Hún er falleg og tignarleg. Frásögn hennar er skýr og yfirveguð þegar hún segir sögu sína sem einkennist af ofbeldi og misbeitingu af verstu gerð.
Hún heldur áfram að rifja upp fyrstu ferðina til Íslands: „Ég varð mjög veik og ég missti meðvitund í flugvélinni á leið til landsins. Það var læknir um borð í vélinni sem sagði mig vera í lífshættu og var því vélinni lent í Sviss þar sem ég var lögð inn á sjúkrahús. Ég var útskrifuð daginn eftir og flaug til Íslands. Mér datt ekki einu sinni í hug að þar gæti ég kannski fengið hjálp til að komast í burtu. Ég var vændiskona og réttindalaus. Konan sem keypti mig sótti mig á flugvöllinn og fór með mig í kjallaraherbergi í úthverfi Reykjavíkur þar sem ég hitti minn fyrsta kúnna sama dag. Ég var enn ennþá mjög veik og leið hræðilega.“
Ítarlegt viðtal við konuna er að finna í DV í dag. Áskrifendur geta lesið viðtalið með því að smella á „Meira“.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma