ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Fær tvo og hálfan milljarð fyrir tveggja ára einangrun

Handtekinn fyrir ölvunarakstur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:22 › 27. janúar 2012
Stephen Slevin fyrir og eftir tveggja ára einangrunarvistina.

Stephen Slevin fyrir og eftir tveggja ára einangrunarvistina.

Karlmaður sem hafður var í einangrun í tvö ár vegna grunsemda um ölvunarakstur fékk 22 milljónir dollara í bætur, eða sem nemur 2,7 milljörðum íslenskra króna. Bandarísku kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu maðurinn ætti rétt á þessum bótum eftir að hafa verið hafður í einangrun í nærri tvö ár, vegna grunsemda um að hann hefði ekið undir áhrifum áfengis.

Stephen Slevin, 58 ára, var handtekinn í ágúst árið 2005 í Dona Ana-sýslu, í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Var það niðurstaða kviðdómsins að yfirvöld í sýslunni hefðu gerst brotleg gegn Slevin.

Hann var sakaður um að hafa réttindalaus ekið stolnum bíl undir áhrifum áfengis.
Rannsókn málsins tók þó nærri því tvö ár. Lögfræðingur Slevins sagði umbjóðanda sinn hafa verið settan í fangelsi og skilinn þar eftir til að veslast upp.

Hann segir skjólstæðing sinn hafa þurft að rífa úr sér tönn eftir að honum var meinað um aðstoð tannlæknis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?