Kim Dotcom sést hér þegar hann kom fyrir dómara skömmu eftir handtökuna. Hann bíður ákvörðunar dómara um það hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. Mynd Reuters.
Hraðskreiðir bílar, einkaþotur, lystisnekkjur, fáklæddar konur og dýrasta lúxusvilla Nýja-Sjálands. Þetta var einkennandi fyrir lífsstíl Kims Dotcom, 38 ára Þjóðverja, sem er stofnandi og aðaleigandi skráarskiptasíðunnar Megaupload.com.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, lokaði síðunni í síðustu viku en grunur leikur á að stjórnendur vefsíðunnar hafi haft um hálfan milljarð dala, eða tæplega 62 milljarða króna, af kvikmyndaframleiðendum og öðrum rétthöfum með því að dreifa efni sem var höfundarréttarvarið. Gerð var húsleit á heimili Kims og hann handtekinn í kjölfarið ásamt þremur öðrum stjórnendum vefsíðunnar.
Hann situr nú í gæsluvarðhaldi og bíður eftir að dómari taki ákvörðun um það hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. Ef dómari fellst á það gæti Kim átt yfir höfði sér áratuga fangelsi í Bandaríkjunum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
