Öldungadeildarþingmaður Repúblikana kynnti frumvarp á þriðjudag sem bannar notkun fóstra í matvælum, þrátt fyrir að hafa viðurkennt að hann viti ekki til þess að matvælafyrirtæki geri það.
Þingmaðurinn heitir Ralph Shortey og kemur frá Oklahoma-borg, Bandaríkjunum. AP-fréttastofan greinir frá því að hann hefði komist að þeirri niðurstöðu að best væri að banna notkun fóstra eftir að hafa sjálfur rannsakað málið á internetinu. Sagði hann frumvarpið vera lagt fram til þess að vekja athygli á málinu og beint að fyrirtækjum sem gætu verið að íhuga að nota fóstur í matvælaframleiðslu.
Shortey segist hafa komist að því að einhver fyrirtæki væru að íhuga að nota stofnfrumur úr fósturvísum til þess að þróa gervibragðefni, en sagðist þó ekki vita til þess að einhver fyrirtæki stæðu að slíkri þróun.
Talsmaður lyfja- og matvælaeftirlits Bandaríkjanna sagðist ekki vita til þess að einhver fyrirtæki væru að íhuga að nota stofnfrumur úr fósturvísum við matvælaframleiðslu og að slíkt væri ekki áhyggjuefni hjá eftirlitinu,
Frumvarp Shorteys myndi þýða bann á framleiðslu og sölu matvæla þar sem fósturvísar hefðu verið notaðir við framleiðslu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
