ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Vill nýlendu á tunglinu árið 2020

„Þýðir það að ég sé framsýnn? Þið getið bókað það“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:02 › 26. janúar 2012

Newt Gingrich, sem sækist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna, vill bandaríska nýlendu á tunglinu. „Við endalok seinna kjörtímabils míns munum við hafa varanlegar bækistöðvar á tunglinu og þær verða bandarískar,“ sagði Gingrich og uppskar mikið lof frá viðstöddum. Gingrich lét þessi orð falla í Flórída þar sem aðalbækistöðvar geimferðastofnunar Bandaríkjanna eru.

Gingrich hefur verið gagnrýndur fyrir sýndarmennsku og stórar tillögur sem menn telja að eigi aldrei eftir að verða að veruleika. „Ég samþykki það að ég sé rembilátur og að það eigi við bandarísku þjóðina. Þýðir það að ég sé framsýnn? Þið getið bókað það,“ sagði Gingrich.

Gingrich kallaði einnig eftir því að 10 prósent af fjárframlögum til bandarísku geimferðastofnunarinnar færu í að örva nýsköpun í geimferðalögum. Til að mynda vill Gingrich sjá mannað geimfar til Mars árið 2020 og jafnvel nýlendu á tunglinu, þar sem hann vonast til að þrettán þúsund manns eigi fasta búsetu eftir átta ár. Gingrich hefur kallað eftir bandarískri nýlendu á tunglinu síðan hann skrifaði um það í bók sinni Window of Oppurtunity árið 1984.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?