Valdimar Hreiðarsson var prestur í Staðarsókn í Súgandafirði. Hann lét af störfum í október í fyrra. Prestsbústaðurinn stendur við Túngötu á Suðueyri í Súgandafirði.
DV sagði frá því síðastliðinn föstudag að séra Valdimar Hreiðarsson, fyrrverandi sóknarprestur í Staðarsókn í Súgandafirði, hefði keypt prestsbústaðinn á Suðureyri í Súgandafirði af þjóðkirkjunni á tvær milljónir króna í janúar árið 2010. Valdimar lét af störfum í október síðastliðnum eftir sameiningu Staðarprestkalls og Þingeyrarprestkalls. Þetta hafði DV eftir lögfræðingnum Guðmundi Þór Guðmundssyni, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, en fasteignamat hússins er 10,8 milljónir króna í dag.
Tók Guðmundur fram að húsið hefði verið selt á tvær milljónir vegna mikillar viðgerðarþarfar sem var á því. Var ástand hússins metið og komist að þeirri niðurstöðu að gera þyrfti við húsið fyrir tíu milljónir króna að sögn Guðmundar. Hann sagði það hafa sparað þjóðkirkjunni umtalsvert fjármagn því annað hvort hefði kirkjan þurft að gera við húsið fyrir þessa upphæð eða finna Valdimar nýtt húsnæði á Suðureyri. „Þetta var beggja hagur,“ sagði Guðmundur.
Sameining fór illa í fólk
Vegna þessarar fréttar barst DV ábending frá Valdimari sjálfum. Rekur hann málið til ársins 2009 þegar Staðarprestakall, sem Súgandafjörður, Súðavík og Djúp heyra undir, var lagt niður og sett undir Þingeyrarprestakall. „Prestur skyldi sitja á Þingeyri. Þetta fyrirkomulag átti að spara eitt prestsembætti og ekki þyrfti lengur að reka prestsbústaðinn á Suðureyri sem þarfnast umtalsverðs viðhalds,“ segir í ábendingu Valdimars sem sagði þessar hugmyndir hafa farið mjög illa í marga á Súgandafirði, að ekki yrði lengur prestur búsettur á Suðureyri.
Segir hann samkomulag hafa orðið á milli sín og biskupsstofu um að hann keypti húsið og þjónaði breyttu prestakalli frá Suðureyri í þeirri von að breytingarnar yrðu auðveldari.
„Spara sér stórfé“
„Kaupverðið var lágt vegna verulegrar þarfar á viðhaldi á húsinu. Einnig og ekki síður var til þess litið að biskupsstofa mundi spara sér stórfé á viðhaldi á húsinu við það að það færi úr eigu kirkjunnar. Við þetta má bæta að ég bjó í þessu húsi í 15 ár án þess að nauðsynlegar endurbætur á því yrðu gerðar. Bjuggum við hjónin tæp tvö ár í húsinu eftir að við keyptum það og þjónaði ég þann tíma Staðarprestakalli eins og það leit út eftir viðamiklar breytingar sem gerðar voru á því árið 2000 og síðar,“ segir í ábendingu Valdimars sem greinir frá því að ekki hafi orðið úr því að hann þjónaði hinu nýja prestakalli.
Óviðundandi með öllu
„Eru margar ástæður þar að baki og mun ég ekki ræða þær hér að öðru leyti en því að sparnaðarkrafan innan kirkjunnar er mjög hávær og niðurskurðarhnífurinn á lofti. Síðastliðið sumar var staða mín orðin allsérstök og óviðunandi með öllu. Þjónaði ég prestakall sem hafði verið lagt formlega niður á kirkjuþingi árið 2009. Til stóð sl. sumar að leggja fyrir kirkjuþing 2011 tillögu um að leggja niður Þingeyrarprestakall. Þá var staða mín sú að ég þjónaði prestakalli sem ekki var lengur til og áformað var að ég þjónaði prestakalli sem stóð til að leggja niður eftir nokkra mánuði. Við þetta bættist að heilsa mín hefur ekki verið sem skyldi nokkur undanfarin ár.
Úr varð að í stað þess að þjóna breyttu prestakalli frá Suðureyri í allt að tíu næstu ár gerði ég starfslokasamning við kirkjuna sem tók gildi fyrsta október sl. Við þetta lækka laun mín umtalsvert. Það að eiga hús virtist gera aðstæður okkar hjónanna léttari en ella og hafði áhrif á ákvörðun okkar þegar við skoðuðum alla þessa hluti,“ segir í ábendingu Valdimars.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma