Jean- Claude Mas var eigandi og forstjóri PIP fyrirtækisins og mun hafa verið handsamaður á heimili sínu í Six-Fours-les-Plages í Frakklandi. Mynd: Reuters.
Eigandi franska fyrirtækisins Poly Implant Prothese (PIP), sem framleiddi gallaðar brjóstafyllingar,var handtekinn í húsi í suður Frakklandi í gærkvöldi. Jean- Claude Mas var eigandi og forstjóri PIP fyrirtækisins og mun hafa verið handsamaður á heimili sínu í Six-Fours-les-Plages í Frakklandi.
Eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum eru PIP sílíkon brjóstapúðarnir gallaðir og var iðnaðarsílikon notað til að framleiða þá. Slíkt efni er ekki heimilt til notkunar í brjóstapúða og er ekki hannað til notkunar í lækningavörur. Notkun á slíkum púðum var bönnuð í Frakklandi árið 2010 og var þrjátíu þúsund konum ráðlagt að láta fjarlægja þær.
PIP málið hefur þó ekki verið staðbundið við Frakkland heldur virðast fjölmargir læknar í Evrópu hafa notað slíka púða, einnig hér á landi eins og hefur margoft komið fram. Rúmlega fjögurhundruð íslenskar konur eru með slíka púða og hafa sex konur þegar komist að því að púðar þeirra leki.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
