Tímalínan á samskiptasíðunni Facebook verður brátt skylda fyrir alla notendur miðilsins. Á tímalínunni verður að finna allar aðgerðir og notkun einstaklinga á Facebook frá því þeir skráðu sig á síðuna fyrst. Notendur síðunnar hafa hingað til geta valið um hvort þeir vilja nota þessa nýjung, en brátt hafa notendur ekkert val um það.
Þeir sem ekki eru búnir að virkja tímalínuna fá brátt tilkynningu frá Facebook um að síðan þeirra hafi verið uppfærð. Þegar notendur fá slíkar tilkynningar hafa þeir viku til þess að fara yfir tímalínuna og ákveða hvað þeir vilja að sé til birtingar og hvað þeir vilja fela.
Tímalínan hefur verið gagnrýnd fyrir að ljóstra upp myndum af einstaklingum sem þeir kæra sig ekki um að sjá eða eiga.
Tímalínan samsvarar sig einnig með forritum líkt og Spotify sem varpar því upp hverju sinni hvaða tónlist þú hlustar á. Þykir mörgum nóg um og benda á að tímalínan sanni hversu mikið af upplýsingum Facebook hefur um notendur sína.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
