Það stefnir í mjög harða baráttu á milli Romney, sem er vinstra megin á myndinni, og Gingrich sem er hægra megin. Mynd Reuters.
Mikill hiti er hlaupinn í baráttuna um útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar sem fram fara í nóvember. Mitt Romney, sem hingað til hefur verið talinn einna líklegastur, hefur átt á brattann að sækja að undanförnu.
Á þriðjudag birti hann opinberlega fimm hundruð blaðsíðna skýrslu um skattamál sín en aðalkeppinautur hans, Newt Gingrich, lét þau orð falla á dögunum að hugsanlega hefði Romney eitthvað að fela í þeim efnum. Þessi orð féllu áður en prófkjör Repúblikanaflokksins í Suður-Karólínu fór fram á laugardag, en sem kunnugt er vann Gingrich óvæntan en þó býsna sannfærandi sigur.
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs eru á einu máli um að Gingrich hafi sýnt mikil klókindi þegar hann dró skattamál Romney upp á yfirborðið. Þetta hafi meðal annars gert það að verkum að Gingrich vann mikilvægan sigur á laugardag en frá árinu 1980 hefur sigurvegari flokksins í Suður-Karólínu alltaf hlotið útnefningu í forsetakosningum.
760 milljónir í skatt
Í skattaskjölunum sem Romney birti á þriðjudag kemur margt athyglisvert fram. Þannig greiddu hann og eiginkona hans, Ann, 13,9 prósent skatt árið 2010. Þetta er talsvert minna hlutfall en gengur og gerist hjá hinum almenna borgara sem greiðir að hámarki 35 prósent skatt. Ástæðan fyrir þessu er sú að stærstur hluti tekna Romney-hjónanna er til kominn vegna gengishagnaðar í fjárfestingum (e. capital gain) og því greiðir hann ekki eiginlegan tekjuskatt af hagnaðinum. Þá kemur fram í skjölunum að árin 2010 og 2011 muni hann greiða samanlagt 6,2 milljónir dala, eða rúmlega 760 milljónir króna í skatt.
Romney, sem er af ríku fólki kominn, hefur einmitt verið gagnrýndur harðlega fyrir að vera ekki í tengslum við hinn almenna borgara. Hann er sjálfur vellauðugur eftir að hafa hagnast gríðarlega í viðskiptum en á sama tíma glíma sífellt fleiri fjölskyldur í Bandaríkjunum við afleiðingar efnahagshrunsins.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
