Töluvert ónæði var af Ásgeiri Þór Davíðssyni, starfsstúlkum hans og vinkonum í Hörpunni síðastliðinn laugardag, samkvæmt heimildum DV. Ásgeir, eða Geiri á Goldfinger líkt og hann er jafnan kallaður, bauð stúlkunum út að borða á veitingastaðnum Kolabrautinni í Hörpu og svo á James Bond tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fóru fram í Eldborg. Heimildirnar herma að hópurinn hafi mætt seint á veitingastaðinn og aðeins náð að borða forrétt áður en tónleikarnir hófust.
Gestur á veitingastaðnum lýsti því sem hálfgerðum sirkus þegar hópurinn gekk inn á staðinn og allra augu beindust að þeim.
Komu seint í salinn
Hópurinn mun hafa verið með heila stúku undir sig en hún var ennþá tóm þegar sinfóníhljómsveitin byrjaði að spila. Á fyrstu tíu, til fimmtán mínútunum tíndust stúlkurnar þó inn ásamt Geira. Gestur í salnum, sem hafði góða yfirsýn yfir stúkuna, segir mikið hafa verið kallað, kjaftað og myndað á meðan á tónleikunum stóð.
Í hléinu fór hópurinn aftur á Kolabrautina til að snæða aðalréttinn sem ekki náðist að bera fram fyrir tónleikana. Það tók sinn tíma og töluvert var liðið á seinni hluta tónleikana þegar hópurinn hafði skilað sér í salinn.
Þremur vísað út
Þá hefur DV heimildir fyrir því að þremur stúlkum, sem voru í fylgd Geira, hafi verið vísað út úr Hörpu vegna óspekta inn á salernum. Þær eiga meðal annars að hafa sparkað í hurðir. Heimildirnar herma að tveir öryggisverðir hafi fylgt stúlkunum út og að þær hafi setið á stéttinni fyrir utan tónlistarhúsið í nokkurn tíma, í stuttum kjólum einum fata.
Tengdar fréttir
Geiri á Goldfinger vakti athygli í Hörpu



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 











Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
