ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

„Ofbeldismennirnir eru allt of margir“

Ein stærsta ógn við líf og heilsu barna og kvenna á Íslandi
13:04 › 24. janúar 2012
Aðeins hluti kynferðisbrotamála ratar inn á borð lögreglu og afar fá mál rata í gegnum allt réttarkerfið.

Aðeins hluti kynferðisbrotamála ratar inn á borð lögreglu og afar fá mál rata í gegnum allt réttarkerfið. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setti ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu á föstudag. Í ræðu sinni sagði hann meðal annars að kynferðisbrotamenn á Íslandi væru allt of margir og að samfélagið þyrfti að horfast í augu við raunveruleikann þar sem kynferðislegt ofbeldi er ein stærsta ógn við líf og heilsu barna og kvenna á Íslandi í dag.

Um aldir hefði verið þagað yfir kynferðislegu ofbeldi og þegar umræðan hófst hefði oft verið ráðist á sendiboðann. Kynferðisofbeldi hefði eflaust verið til úti í hinum stóra heimi en ekki á litla Íslandi þar sem við teljum okkur þekkja vel til hvert annars. Í dag vissum við betur. „Við vitum að kynferðislegt ofbeldi er ein stærsta ógn við líf og heilsu barna og kvenna á Íslandi í dag. Við vitum að tilvikin eru ekki teljandi á fingrum annarrar handar eða beggja. Þau skipta ekki tugum, heldur hundruðum á ári hverju. Aðeins hluti kynferðisbrotamála ratar inn á borð lögreglu og afar fá mál rata í gegnum allt réttarkerfið.

Brotaþolarnir eru alltof margir og það sem enn verra er, ofbeldismennirnir eru alltof margir. Sem samfélag þurfum við að horfast í augu við veruleikann og reyna að skilja hvað það er í samfélagsgerðinni sem gerir að verkum að allt þetta ofbeldi þrífst,“ sagði ráðherrann enn fremur.

Innanríkisráðuneytið stóð að ráðstefnunni ásamt lagadeild Háskóla Íslands, Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni og í samvinnu við Evrópuráðið. Sagðist Ögmundur vonast til þess að ráðstefnan yrði til þess að efla umræðu um kynferðisbrot á Íslandi. Hugsanlega tækist að finna leiðir til að breyta og bæta meðferð þeirra í réttarkerfinu.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »
Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.