Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Karl Steingrímsson, sem oftast er kenndur við verslunina Pelsinn, var á mánudag dæmdur til að endurgreiða Arion banka rúmlega eina milljón króna.
Upphæðin var eftirstöðvar láns sem eignarhaldsfélagið Vindasúlur ehf. hafði tekið hjá bankanum og Karl, sem var eigandi Vindasúlna allt þar til fyrirtækið fór í þrot, hafði gengist í sjálfskuldarábyrgð fyrir.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn lækkaði talsvert þær kröfur sem Arion banki hafði gert.
Sannað þótti að búið hafði verið að endurgreiða langstærsta hluta lánsins, sem hljóðaði upp á tæplega 25 milljónir króna. Í samtali við blaðamann eftir að dómurinn var kveðinn upp sagði lögmaður Karls að hann teldi líklegt að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma