ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.6° 3m/s ESE

Aflýsa Dirty Night

Segja Sjallann sýna samfélagslega ábyrgð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:57 › 24. janúar 2012

Akureyrarbær og skemmtistaðurinn Sjalinn hafa komist að samkomulagi um að ekki verði haldið svokallað „Dirty night“ á skemmtistaðnum. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að Akureyrarbær hafi beðið um að kvöldinu yrði aflýst.
Þar segir :
„Undanfarið hefur birst á samfélagsmiðlinum Facebook auglýsing frá agent.is um Dirty Night sem halda átti í Sjallanum á Akureyri laugardagskvöldið 4. febrúar nk. Akureyrarbær, rekstraraðilar Sjallans og agent.is komust í dag að samkomulagi um að Sjallinn aflýsi þessum viðburði þar sem hann stríðir mjög gegn jafnréttisstefnu bæjarins þar sem m.a. er lögð áhersla á að vinna gegn stöðluðum kynjaímyndum.

Viðburðir sem þessir hafa verið haldnir víða um land og verið mjög umdeildir, enda um að ræða hugmyndafræði sem lýtur að stöðluðum kynjaímyndum.

Akureyrarbær fagnar þeirri samfélagslegu ábyrgð sem rekstraraðilar Sjallans sýna í þessu máli.“

Fyrir stuttu var haldið slíkt kvöld í Kópavogi, á skemmtistaðnum Players sem vakti mikla athygli. Dirty Night-viðburðurinn vakti litla lukku meðal stjórnvalda í bænum en eins og fram hefur komið kærði jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar auglýsingar fyrir viðburðinn til lögreglu. Var auglýsing fyrir viðburðinn talin niðurlægjandi fyrir konur og Kópavogsbæ þar sem sjá mátti klæðalitlar dömur dansa í búrum og gesti lepja áfengi úr nöflum fáklæddra meyja.
Og um velgengni kvöldsins hefur vertinn þetta að segja á Facebook-síðu sinni: „Þakka femínistakellingum fyrir góðan auglýsingapakka og svo trúi ég nú ekki öðru en að bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Kópavogs verði búnar að segja starfi sínu lausu fyrir morgundaginn enda greinilega með allt niðrum sig í sínu starfi!“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.