ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Heimavarnarliðið varar við stríði

„Þeir sem stofna til stríðs verða að taka þá áhættu að fara halloka“

Heimavarnarliðið borið út í Breiðagerði á þriðjudag. Sigtryggur Ari Jóhannsson ofl.

Heimavarðliði borinn út úr Breiðagerði með valdi.

Mótmælandi fluttur í lögreglubíl.

Heimavarðliði gefur merki.

Liðinu komið út.

Heimavarðliði setur lögreglunni bekkinn fyrir dyrnar.

Situr fastur við sinn keip.

Ekki lengur til setunnar boðið.

Átökunum lokið með sigri sýslumanns og bankanna.

Ingvar Haraldsson og Sigriður Eysteinsdóttir, fulltrúar sýslumannsins í Reykjavík, ásamt Karli Óttari Péturssyni úr höfuðstöðvum Arionbanka, við útburð að Breiðagerði 7 í Reykjavík 17. janúar síðastliðinn.

Helga Björg Grétudóttir mótmælandi varðist útburði af heimili sínu með hjálp Heimavarnarliðsins.

Lögregla og sýslumaður gerðu misheppnaða tilraun til útburðar í lok síðasta sumars.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:05 › 23. janúar 2012
  • Heimavarðliði borinn út úr Breiðagerði með valdi.

    Heimavarðliði borinn út úr Breiðagerði með valdi.Sigtryggur Ari Jóhannsson ofl.

  • Mótmælandi fluttur í lögreglubíl.

    Mótmælandi fluttur í lögreglubíl.Sigtryggur Ari Jóhannsson ofl.

Fara í myndagallerý →

Meðlimir Heimavarnarliðsins voru
yfirbugaðir af lögreglu á dögunum, þar sem þeir reyndu árangurslaust að stöðva útburð í Breiðagerði í Reykjavík. Nú vara þeir sýslumann og opinberar stofnanir við stríði.

„Getur magnast“
Í tilkynningu sem Heimavarnarliðið sendi frá sér í gær er ýjað að því að átök Heimavarnarliðsins við þá sem framfylgja aðgerðum bankanna muni stigmanast. „Ef sýslumenn og opinberar stofnanir vilja styðja bankana skilyrðislaust í stríði við almenning og hundsa réttindi hans, þá getur það magnast og vaxið þeim yfir höfuð. Þeir sem stofna til stríðs verða að taka þá áhættu að fara halloka.“

Borgaði ekki af húsinu
Heimavarnarliðið hefur ítrekað látið til sín taka undanfarna mánuði. Á þriðjudaginn í síðustu viku voru meðlimir hópsins fjarlægðir af heimili í Breiðagerði í Reykjavík. Í lok síðasta sumars voru hátt í þrjátíu heimavarnarliðar stöðvaðir af lögreglu þegar þeir reyndu að koma í veg fyrir útburð af heimilinu. Eigandi hússins hafði ekki greitt bankanum af heimilinu frá árinu 2008. Liðinu tókst að hindra útburðinn um sinn.

Breytt stefna?
Heimavarnarliðið spratt upp úr hópi aðgerðarsinna sem tóku þátt í Búsáhaldabyltingunni 2009. Þegar Heimavarnarliðið var stofnað í byrjun árs 2010 kváðust stofnendur þess ætla að ganga friðasamlega fram, en áskildu sér „rétt til að verja hendur sínar“. Þá kom fram í tilkynningu að liðsmenn í Heimavarnarliðinu þyrftu að vera orðnir lögráða, vera agaðir og styðja markmið þess.

Yfirlýsing Heimavarnarliðsins
Þriðjudaginn 17. janúar var fjölskylda borin út af heimili sínu að Breiðagerði 7 Reykjavík. Þessi atburður og aðdragandi hans sýnir í hnotskurn hve almenningur á Íslandi er varnarlaus gagnvart geðþóttaákvörðunum bankanna og hve réttur fólks til heimilis er fótum troðinn á Íslandi.
Sýslumenn eru stimpilpúðar bankanna og skella skollaeyrum við ábendingum um að forsendur fyrir uppboðskröfum séu ólögmætar og eftir það er varla hægt að snúa til baka. Opinberar stofnanir vísa fólki á dyr þegar það vill fá hlut sinn réttan og hver vísar á annan. Þannig er fjöldi fólks sviptur aleigunni og rekinn út á gaddinn í trássi við þá reglu að almenningur eigi að njóta vafans í málum af þessu tagi.
Ef sýslumenn og opinberar stofnanir vilja styðja bankana skilyrðislaust í stríði við almenning og hundsa réttindi hans, þá getur það magnast og vaxið þeim yfir höfuð. Þeir sem stofna til stríðs verða að taka þá áhættu að fara halloka.


Könnun

Styður þú málstað Heimavarnarliðsins?





Skoða niðurstöður



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.