„Ég er sátt við það,“ segir Guðný Þorsteinsdóttir í samtali DV.is en Emmessís hefur ákveðið að taka svokallaða Stelpu- og Strákaísa af markaði. Guðný birti mynd af vörunum á Facebook-síðu sinni í gær og vakti hún hörð viðbrögð.
Guðný segir Facebook vera magnaðan vettvang fyrir svona ábendingar. „Þetta er alveg stórkostlegt. Ein lítil mynd hefur þessi áhrif. Ég er búin að vera tuðandi í mörg ár yfir mismunun kynjanna og aldrei gerist neitt. Þetta er frábært,“ segir Guðný sem er ánægð með Emmessís að hafa bakkað með vöruna. „Mér finnst þetta röng markaðssetning að sýna börnum að strákar megi ekki borða jarðaberjaís og verða fyrir aðkasti ef þeir vilja það. Mér fannst þetta ekki eðlilegt og er mjög ánægð með þetta,“ segir Guðný en DV.is birti í morgun viðtal við Guðný og myndina sem hún tók af vörunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
