ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

„Vinatengsl geta auðvitað haft áhrif“

Ráðinn til Arctic Odda viku áður en ákvörðun var tekin um breytingar á úthlutunarreglum
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
11:00 › 20. janúar 2012
Eiríkur Finnur, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Ísafjarðar.

Eiríkur Finnur, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Ísafjarðar.

Eiríkur Finnur Greipsson, forseti bæjarstjórnar á Ísafirði, vék sæti í bæjarstjórn meðan ákvörðun var tekin um endurskoðun reglna um úthlutun á byggðakvóta. Hann var ráðinn í síðustu viku til fyrirtækisins Arctic Odda sem hagnaðist gífurlega á breytingu á reglunum sem voru samþykktar í bæjarstjórninni í gær. Reglunum var breytt á þann veg að ólíkt viðmiðum stjórnvalda er miðað við veiðireynslu síðustu þriggja ára en ekki bara eitt fiskveiðiár aftur í tímann þegar kemur að úthlutun byggðakvótans.

„Þú verður að spyrja þá að því, ég er ekki að greiða atkvæði. Ég get ekki svarað fyrir aðra. Ég tek bara ákvörðun út frá eigin sjónarmiðum og eigin skoðunum. Þú verður að spyrja þau að því,“ segir Eiríkur Finnur aðspurður hvort hann telji tengsl sín við bæjarfulltrúa hafi haft áhrif á ákvörðunina. „Vinatengsl geta auðvitað haft áhrif en ég veit ekki hvort þetta ágæta fólk sé að taka afstöðu til málanna á grundvelli þess.“

Það liggur þó fyrir að málið tók breytingum eftir að Eiríki Finni var boðin vinna hjá fyrirtækinu. „Mér var boðið í síðustu viku vinna hjá þessu fyrirtæki og fyrir þann tíma var bæjarráð búið að vinna drög að tillögum sem að breyttust allmikið í meðförum eftir að ég kunngerði mína breyttu hagi,“ segir Eiríkur. „Þannig að ég veit ekkert hvort það er vegna þess að ég er að vinna þarna sem það breyttist en það er alveg klárt að ég kom ekkert að málinu og það er öðruvísi en ég hafði verið að vinna að.“

Arctic Oddi er nýtt fyrirtæki sem keypti eignir þrotabús Eyrarodda. Meðal þeirra eigna voru vélbáturinn Stjáni Ebba ÍS . Stjáni Ebba var gott sem ekkert á veiðum á síðasta fiskveiðiári vegna gjaldþrots Eyrarodda og eftirmála þess. Hefðu reglunum því ekki verið breytt hefði útgerð Stjána Ebba ekki fengið jafn mikinn byggðakvóta og útgerðin fær nú.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?