Harry Reid ákvað að bakka með hin umdeildu frumvörp í ljósi gríðarlegrar reiðiöldu í netheimum. Mynd: Reuters
Ákveðið hefur verið að fresta frekari meðferð á hinum umdeildu SOPA- og PIPA-lögum á bandaríska þinginu eftir að aðalstuðningsmaður frumvarpanna, öldungadeildarþingmaðurinn Harry Reid, ákvað að salta þau um óákveðinn tíma.
Reid er leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings og sagði hann að í ljósi undangenginna atburði hafi hann ákveðið að draga frumvörpin til baka. Í kjölfarið bárust fréttir af því að fulltrúadeild Bandaríkjaþings myndi einnig fresta málinu sem hefur sett netheima á annan endann undanfarna daga og vikur.
Stuðningur við frumvörpin fór dvínandi eftir hörð mótmæli og árásir netþrjóta, meðal annars á vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins.
Frumvörpin fólu í sér í sér að Bandaríkjastjórn myndi vera heimilt að slökkva á vefsíðum sem grunur leikur á að geti verið notaðar í þeim tilgangi að koma höfundarréttarvörðu efni í ólöglega dreifingu. Einnig er lagt til í frumvörpunum að vefsíður sem gera notendum kleift að deila slíku efni séu ábyrgar fyrir því sem notendur þeirra gera. Þannig vilja stuðningsmenn frumvarpanna að hægt verði að draga YouTube, Wikipedia og fleiri til ábyrgðar brjóti einhver af notendum vefsíðnanna gegn höfundarétti.
Hugmyndirnar ganga svo langt að hafa áhrif á vefsíður sem eru vistaðar fyrir utan Bandaríkin. Í raun snúast þessi tvö frumvörp að miklu leyti að erlendum vefsíðum. Bandaríkjastjórn hefur þegar heimild til að loka á og taka yfir bandarískar vefsíður sem stjórnin telur að brjóti í bága við höfundaréttarlög. Vefsíður sem hafa deilt sjónvarpsefni og torrent-síður hafa verið meðal vefsíðna sem stjórnin hefur þegar lokað með þeim heimildum sem eru til staðar í bandarískum lögum í dag.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
