ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Reisa heilsuþorp fyrir sjö milljarða

Kínverjar íhuga að leggja milljarða í heilsuþorp við Flúðir
Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
12:00 › 20. janúar 2012

„Við höfum farið í marga sparisjóði og banka á Íslandi og það er ekki krónu að fá. Allt tal um uppbyggingu með bönkum og sjóðum á Íslandi er þunnur þrettándi,“ segir Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og forsvarsmaður fyrirtækisins Heilsuþorp á Flúðum ehf. Hann vinnur nú að því, ásamt fleirum, að reisa stórt heilsuþorp á jörðinni Gröf á Flúðum. Sunnlenska fréttablaðið greindi fyrst frá þessu.

Árni segir að Kínverjar séu áhugasamir um að leggja fé í verkefnið en fullreynt sé að afla fjár hér á Íslandi. Verkefnið í heild gæti kostað á bilinu sex til sjö milljarða króna. Árni segir að innan fárra vikna eða mánaða gæti fullbúin viljayfirlýsing við kínverska fyrirtækið CSST International, verið undirrituð, um að leggja til það fé sem þarf. Drög að viljayfirlýsingu hafi þeir þegar séð. Undirbúningsvinnan er vel á veg komin en Árni segir þó að mörg ljón séu enn í veginum áður en þorpið rís.

Árni segir að hugmyndin að heilsuþorpi hafi fæðst fyrir allnokkrum árum. „Grunnhugmyndin er sú að fólk geti komið, fengið ítarlega úttekt á heilsu sinni, hvílt sig hjá okkur og fengið ráðleggingar til að bæta heilsuna.“

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?