Keypti af Holtaseli. Höfðaborg keypti hlutabréf í Glitni af móðurfélagi sínu Holtaseli árið 2008. Félögin eru í eigu Péturs Guðmundssonar, eiganda Eyktar.
Höfðaborg ehf., eignarhaldsfélag í eigu Péturs Guðmundssonar, eiganda verktakafyrirtækisins Eyktar, skilur eftir sig 3,5 milljarða króna skuldir sem ekkert fæst upp í. Þetta kemur fram í auglýsingu um skiptalok félagsins sem birt er í Lögbirtingablaðinu.
Félagið keypti hlutabréf í Glitni af móðurfélagi sínu, Holtaseli ehf., árið 2008 og skuldsetning þess tilkomin vegna þessa. Um þetta segir í ársreikningi félagsins fyrir árið 2009: „Höfðaborg ehf. var stofnað á árinu 2006, en eiginleg starfsemi hófst í félaginu á árinu 2008 þegar félagið keypti hlutabréf í Glitni banka hf. og aðra fjármálagerninga af móðurfélagi sínu Holtaseli ehf. sem töpuðust að stórum hluta í hruninu 2008. Stjórnendur félagsins eru í samvinnu við viðskiptabanka félagsins að vinna að lausnum fyrir félagið. Ef ekki kemur til eftirgjafar skulda af hálfu viðskiptabanka er rekstrarhæfi félagsins brostið.“
Holtasel var einnig eigandi Eyktar og eignarhaldsfélagsins Höfðatorgs sem stofnað var utan um nýbyggingu í Borgartúni sem ber sama nafn. Höfðatorg skuldaði 23 milljarða króna í lok síðasta árs og hefur Íslandsbanki yfirtekið félagið að mestu. Tapið af hlutabréfunum í Glitni og 3,5 milljarða afskriftirnar lenda því á Höfðaborg en ekki Holtaseli, fyrrverandi móðurfélagi Eyktar og Höfðatorgs, þar sem hlutabréfin og skuldirnar vegna þeirra voru færðar yfir í Höfðaborg af einhverjum ástæðum árið 2008.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
