Hvern vilt þú sem næsta forseta Íslands?
Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, nýtur stuðnings þeirra lesenda sem tekið hafa þátt í forsetakönnun DV.is. Ragna sat sem ópólitískur ráðherra í ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og naut þar vinsælda. Hátt í 800 manns hafa tekið þátt í könnuninni þar sem lesendur geta valið um fjölmarga sem orðaðir hafa verið við framboð með einum eða öðrum hætti.
Ragna hefur fengið rétt tæplega 21 prósent atkvæða.
Athygli vekur að fast á hæla Rögnu fylgir borgarstjóri Reykjavíkur Jón Gnarr sem 18,5 prósent lesenda vilja sjá á Bessastöðum næstu fjögur árin. Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, seðlabankastjóri og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, er í þriðja sæti með tæplega 13 prósent.
Hægt er að taka þátt í könnuninni og skoða niðurstöðurnar eins og þær eru í augnablikinu hér: Leitin að nýjum forseta hafin

Hemmi Gunn fallinn frá