Mæðgurnar Jussanam Da Silva og dóttir hennar Jaqueline da Silva Luquez hafa mætt miklu mótlæti þau ár sem þær hafa dvalið hér á landi. Í kjölfar skilnaðar Jussanam var henni vísað úr landi og beið hún lengi upp á von og óvon eftir því að fá úr því skorið hvort hún fengi varanlegt dvalarleyfi hér á landi. Innanríkisráðuneyti veitti henni langþráð dvalarleyfið í sumar og byggði ákvörðun sína á sterkum tengslum hennar við land og þjóð.
Hvað bar hæst á árinu hjá þér og dóttur þinni?
„Án alls vafa bar það hæst að ég og dóttir mín erum nú íslenskir ríkisborgarar.“
Voru einhverjar hindranir í veginum á árinu?
„Helsta hindrunin var sú að missa bæði dvalar –og atvinnuleyfi um þónokkra hríð og þurfa að þrauka án tekna hér á landi.“
Náðuð þið að sigrast á þeim? Hvernig?
„Ég sigrast á mínum hindrunum með því að syngja eins mikið og ég get og með hjálp íslenskra verndarengla. Marga þeirra þekkti ég ekki fyrr en ég lenti í þessum erfiðleikum. Það var þeirra stuðningur í reynd. Stuðningur Íslendinga, bæði vina og þeirra sem urðu á vegi mínum sem gerði mér kleift að sigrast á öllum hindrunum.“
Af hverju eruð þið stoltastar?
„Við erum sterkari eftir glímu okkar og sameinuðumst í baráttunni. Ég er mjög stolt af því að við unnum eins og við gátum til þess að halda í mannvirðingu okkar. Ég með því að syngja og dóttir mín með því að gæta barna. Ég verð að nefna að ég er líka stolt af því að ákvörðun ráðherra er byggð á hæfileikum mínum og framlagi til menningarlífs auk sterkra tengsla við land og þjóð. Sem listamaður gæti ég ekki verið stoltari.“
Hvernig hefur árið liðið hjá þér og fjölskyldunni?
„Ég sneri aftur til vinnu í Hlíðaskjóli í ágúst eftir að hafa beðið í eitt ár eftir svörum og það var tilfinningaþrungin stund. Nú vinn ég á leikskóla, dóttir mín vinnur í skóla og aðstoðar við umönnun fatlaðra barna. Ég hef eignast mikið af nýjum og frábærum vinum og ég hef líka fundið ástina. En tíminn verður að leiða í ljós hvort hún blómstrar.“
Hvað ber árið 2012 í skauti sér?
„Ég vona að þetta verði gott ár fyrir okkur Íslendinga eftir áföllin sem hafa dunið á okkur frá árinu 2008. Ég vonast til þess að taka upp plötu á næsta ári með frumsömdum lögum eftir mig og í samstarfi við fjölmarga aðra. Ég vona að ég finni mér góðan útgefanda og að tónlist mín haldi áfram að vaxa og þroskast.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
