Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, ætlar að bjóða starfsstúlkum og vinkonum út að borða og á sinfóníutónleika.
Það má segja að óvenjulega litríkur hópur gesta muni hlýða á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstkomandi laugardagskvöld, en þá ætlar súludansstaðakóngur Íslands, Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, að gera starfsstúlkum sínum glaðan dag og bjóða þeim á James Bond-tónleika hljómsveitarinnar. „Þetta eru allt konur sem eru í kringum klúbbinn,“ segir Ásgeir. „Þær vinna á staðnum og svo eru þetta líka vinkonur og allavegana.“
Alls eru þetta um tuttugu konur og segir Ásgeir að mikil stemning sé fyrir kvöldinu en fyrir tónleikana fer hópurinn saman út að borða. „Við erum ekki alveg búin að ákveða hvert við förum út að borða, en ætli það verði ekki á Nordica eða Hótel Sögu og síðan verður farið á tónleikana klukkan tíu um kvöldið.“
Þema tónleikanna er eins og fyrr segir James Bond og mun hljómsveitin spila þekkt lög úr kvikmyndunum en ásamt því munu landskunnir tónlistarmenn á borð við Pál Óskar og Siggu Beinteins syngja við lögin.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ásgeir gerir vel við konurnar á Goldfinger en í fyrra bauð hann hópi súludansmeyja í óperuna. „Ætli ég geri þetta ekki svona tvisvar á ári. Ég fer nú mikið með konurnar út að borða og svona hitt og þetta.“
Ásgeir segir að þetta sé hans leið til að láta starfsfólk sitt finna að hann meti það að verðleikum. „Ætli við mætum ekki bara í svona James Bond-búningum og tökum þetta alla leið,“ segir Ásgeir léttur að lokum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
