ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Breskir hermenn handteknir fyrir barnaníð

Grunaðir um kynferðislegt ofbeldi í Afganistan
22:00 › 18. janúar 2012
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sést hér ræða við breska og bandaríska hermenn í Afganistan í júlí í fyrra. Hann er sagður sleginn vegna málsins.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sést hér ræða við breska og bandaríska hermenn í Afganistan í júlí í fyrra. Hann er sagður sleginn vegna málsins. Mynd: Reuters

Tveir breskir hermenn sem þjónuðu í Afganistan hafa verið handteknir grunaðir um að níðast á tíu ára stelpu og strák þar í landi.

Hermennirnir eru sakaðir um að hafa skipað börnunum að snerta kynfæri sín á meðan þeir tóku ofbeldið upp á myndband.
Þetta myndband eru þeir svo sagðir hafa sýnt kollegum sínum í hernum sem var gjörsamlega misboðið og tilkynntu þeir málið til heryfirvalda.

Talskona varnarmálaráðuneytisins í Bretlandi hefur staðfest að Royal Military Police sé með málið til rannsóknar en frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu samkvæmt breskum fjölmiðlum. Daily Mail greinir frá því að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hafi verið greint frá málinu og mun hann vera yfir sig hneykslaður.

Aðeins eru nokkrir dagar síðan myndband var afhjúpað sem sýndi bandaríska hermenn míga á lík látinna Afgana. Það myndband vakti gríðarhörð viðbrögð og er það mál er einnig til rannsóknar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.