Fjöldi vefsíða birtu myndband í gær þar sem fjórir landgönguliðar Bandaríkjahers sjást kasta af sér þvagi yfir lík þriggja manna. „Eigðu góðan dag,“ heyrist einn þeirra segja. „Náðir þú þessu á myndband,“ spyr einn þeirra og er honum svarað játandi.
Á vef bandarísku fréttastofunnar CNN er greint frá því að ekki sé vitað hver tók eða birti þetta 39 sekúndna langa myndband. Þá liggur ekki fyrir hverjir það eru sem birtast í myndbandinu eða hvar það var tekið.
Á vef bresku fréttastofunnar Sky er greint frá því að landgöngulið Bandaríkjahers hafi ekki staðfest hvort að myndbandið sé af mönnum innan þeirra raða en fréttastofan Sky segir líkin vera af Talíbönum.
Talsmaður landgönguliðs Bandaríkjahers sagði hegðunina sem birtist í myndbandinu ekki vera í samræmi við gildi landgönguliðsins. „Þetta mál verður rannsakað að fullu,“ sagði Stewart Upton, hjá landgönguliðinu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
