„Það þarf að taka öllu með miklum fyrirvara sem kemur frá þessu pari sem skipar slitastjórn Glitnis, dæmin sanna það,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson í svari við fyrirspurn DV um stefnu slitastjórnarinnar vegna 15 milljarða króna kúluláns sem veitt var Baugi í desember 2007.
Slitastjórnin hyggst stefna Jóni, Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, auk öllum fyrrverandi stjórnarmönnum vegna lánveitingarinnar og krefjast 6,5 milljarða króna í skaðabætur. Samkvæmt frétt RÚV í dag er slitastjórnin með gögn sem talin eru sýna fram á aðkomu Jóns Ásgeirs að lánveitingunni en hann var forstjóri Baugs og stjórnarformaður í FL Group, sem átti stærstan hlut í Glitni og því setið beggja vegna borðs ef rétt reynist.
Jón segir í svari við fyrirspurn DV að klárt sé að Baugur hafi fengið þetta lán. Engar sérstakar sannanir þurfi fyrir því. Hann segir hins vegar málið hafa farið fyrir stjórn Glitnis á sínum tíma, en stjórnarformaður bankans og forstjóri FL Group hafi ekki tekið þátt í umræðu um það.
Jón Ásgeir bendir á að Kaupþing og Landsbanki hafi áður veitt Baugi algjörlega sambærileg lán og vísar til fjárhagslegs styrkst félagsins út frá ársreikningi. Efnahagsreikningur Baugs í árslok 2007 hafi verið rúmlega 300 milljarðar, með eigið fé upp á 90 milljarða. „Þegar sagan verður skoðuð þá mun koma í ljós að það var Baugur sem tapaði á Glitni en ekki öfugt.“
Tölvupóstar sanna að ferlið var eðlilegt
Jón Ásgeir hinu víkjandi láni hafi verið ráðstafað með þeim hætti að Glitnir veitti Baugi lánið í lok desember 2007 með gjalddaga eftir 5 ár. Í árslok var 11.450 milljónum af láninu haldið sem bundinni bankainnstæðu hjá Glitni en 3.550 milljónir voru greiddar út til Baugs. „Eða 1% af efnahagsreikningi Baugs.“
„Á árinu 2008 voru svo greiddar um 5.000 milljónir til Baugs en hluti af því var til að gera upp önnur lán hjá bankanum og peningamarkaðssjóðum bankans.“ Lánið hafi aldrei verið greitt að fullu að sögn Jóns.
Hafði ekkert boðvald yfir Glitni
Jón Ásgeir segir framkvæmdastjórn Baugs Group hafa annast þessa lántöku og átt í daglegum samskiptum við stjórnendur Glitnis. „Tugir tölvupósta sýna að ferlið var eðlilegt í alla staði.“ Stjórn Baugs hafi síðan veitt Stefáni Hilmarssyni, þáverandi fjármálastjóra, umboð til að undirrita lánaskjölin.
Aðspurður um eigin aðkomu segist Jón hafa komið að mörgum málum, stórum og smáum. „Ég hafði ekkert boðvald yfir Glitni. Ef svo hefði verið hefði málið líklega aldrei farið inn á borð stjórnar félagsins. Það eru til tugir tölvugagna sem sýna að stjórnendur Baugs höfðu áhyggjur af því að þeir fengju neikvætt viðmót hjá Glitni vegna eignartengsla við bankann.“
Slitastjórnin „búin að gera upp á bak““
„Höfum í huga að slitastjórn Glitnis er í hefndarhug. Búin að gera upp á bak í svokölluðu New York máli. Í London laug Steinunn [innsk. blm. Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar] að réttinum að ég ætti rúmlega 200 milljónir punda inn á bankareikningi í UK sem síðan kom í ljós að voru reikningar í eigu Iceland Foods.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
