Jón Ásgeir Jóhannesson. Grunaður um að sitja beggja vegna borðs í lánveitingu Glitnis til Baugs árið 2007. Mynd: DV/Sigtryggur Ari
Slitstjórn Glitnis hefur stefnt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding og allri fyrrverandi stjórn bankans vegna 15 milljarða króna kúluláns sem Glitnir veitti Baugi í desember 2007. RÚV greinir frá því að slitastjórnin hafi gögn sem talið er að sanni aðkomu Jóns Ásgeirs að lánveitingunni. Hann var sem kunnugt er forstjóri Baugs og stjórnarformaður í FL Group, sem átti stærstan hlut í Glitni. Ef rétt reynist sat Jón Ásgeir því beggja vegna borðs í þessu máli.
Slitastjórnin mun meta tjónið vegna þessa gjörnings á sex og hálfan milljarð króna og er það upphæðin sem hún krefur Jón Ásgeir, Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis og stjórn bankans um. Í stjórninni sátu Þorsteinn M. Jónsson, kenndur við Coke, Jón Sigurðsson, þáverandi forstjóri FL Group, Skarphéðinn Berg Steinarsson, þáverandi stjórnarformaður FL Group, Pétur Guðmundsson, lögmaður Logos, Björn Ingi Sveinsson, forstjóri Saxbygg, Haukur Guðjónsson og Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis.
RÚV greinir frá því að þetta mál sé angi af skaðabótamáli slitastjórnarinnar fyrir dómstól í New York sem fellt var niður á dögunum. Steinunn Guðbjartsdóttir boðaði, meðal annars í samtali við DV, að unnið væri að því að höfða málið fyrir dómstólum hér á landi.
RÚV greinir frá því að lánamörk bankans til Baugs hafi einnig verið komin langt umfram heimildir þegar það var veitt.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
