Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, græddi 21,7 milljónir króna á plötu sinni Haglél sem kom út fyrir jólin. Hann seldi um 28 þúsund diska, sem er líklega met í íslenskri tónlistarsögu. Þar að auki sló þar með við rithöfundunum Yrsu Sigurðardóttur og Arnaldi Indriðasyni, sem seldu hvort um sig um tuttugu þúsund bækur fyrir jólin.
Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins og verður nánar fjallað um málið í blaðinu á morgun. Samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins voru tekjur Mugison af hverjum seldi diski í kringum 1.550 krónur. Að teknu tilliti til kostnaðar fellur í hlut listamannsins um 775 krónur af hverjum diski. Heildartekjurnar voru því rúmlega 43 milljónir króna og hlutur Mugison um helmingur þeirra.
Frétt Viðskiptablaðsins: Mugison velti 43 milljónum og græddi 22 milljónir kr.
Tengdar fréttir
Þakklátur Mugison býður ókeypis tónleika í Hörpu



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
