ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

„Komið fram við sparifjáreigendur eins og óvini ríkisins“

Vilhjálmur Bjarnason líkir skattheimtu við galdrabrennur
Atli Þór Fanndal atli@dv.is
12:31 › 10. janúar 2012
Nornaveiðar og eignarupptökur. Vilhjálmur Bjarnason framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta

Nornaveiðar og eignarupptökur. Vilhjálmur Bjarnason framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta © Gunnigunn Birtingur

„Það er komið fram við sparifjáreigendur eins og óvini ríkisins,“ segir Vilhjálmur Bjarnason framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta sem líkir núverandi skattheimtu sparifjár við galdrabrennur fyrri alda. Þessi ummæli lét hann falla í samtali við blaðamann á skattafundi Viðskiptaráðs í dag. Áður hafði hann líkt skattlagningu á sparifé við galdrabrennur fyrri alda. Þau ummæli lét Vilhjálmur falla í fyrirlestri um skattlagning fjárhagstekna sem Vilhjálmur sagði skattlagningu á fjáreignum sem að segir raunar eignarupptöku.

Í fyrirlestrinum sagði Vilhjálmur skattlagninguna raunar vera eignarupptöku á sparifé fólks. Í fyrirlestrinum birti hann útreikninga sem sýndu fram á að í flestum tilvikum dugi vextir á sparifé ekki fyrir verðbólgu og skattlagningu, því verði rýrnun á sparifé fólks.

„Ég notaði engin stór orð. Ég leyfi mér að kalla þessa skattheimtu þessum nöfnum. Galdrabrennur fyrri alda áttu sér efnahagslegar forsendur. Það var verið að reyna að ná eignum af fólki,“ segir Vilhjálmur og stoppar ekki þar. „Það sama á við í dag. Verið er að reyna að ná eignum að fólki. Hundrað skattbreytingar kallar fjármálaráðherra aukið réttlæti. Ég veit ekki hvernig þetta réttlæti er mælt. Það eru ekki stór orð [ að tala um galdrabrennur, innskot blaðamanns] þegar sjónum er beint að ákveðnum hópum,“ segir Vilhjámur. „Ég fæ ekki séð að hér séu nein stór orð viðhöfð. Ráðist er á aðila þar sem laust fé er fyrir hendi.“

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?