„Það er ljóst að greiða þarf fyrir öryggisnetið,“ sagði Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra við setningarræðu Skattadags Deloitte í fyrr í morgun. Oddný sagði skattkerfið geta gegnt félagslegu hlutverki til dæmis með þrepaskiptu skattkerfi þar sem lágtekjufólk greiðir lægri hlutdeild tekna en þeir sem hærri tekjur hafa.
„Því verður ekki á móti mælt að breytingar á skattkerfinu eru margar. Flestar breytingarnar eru hækkanir en inn á milli eru lækkanir sem vilja gleymast," sagði Oddný og bætti við að breytingar núverandi yfirvalda á skattheimtu fjármagnstekjuskatta hafi fækkað þeim sem greiði slíkan skatt um 140 þúsund.
Fjármálaráðherra fór í ræðu sinni yfir breyttar skattaáherslur síðustu ára. Hún sagðist sjálf ekki hafa talið fjölda breytinga á skattkerfið. „Það eru ekki margir góðir kostir í stöðunni fyrir stjórnvöld. Hvorki hér á landi sem og í öðrum löndum þegar þjóðargjaldþrot er yfirvofandi. Íslensk yfirvöld brugðust rétt við með blandaðri leið niðurskurðar og skattahækkana," sagði ráðherra og bætti við að flest ríki Evrópu hefðu hækkað skatta á síðustu árum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
Margrét Frímanns:„Allir brugðust hárrétt við“
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
