ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.6° 3m/s ESE

„Jón Gnarr má skammast sín“

Reykjavíkurborg leggur nýtt fæðisgjald á fatlaða
Úlfar Bjarki Hjaltason er ósáttur við borgina. „Ég vil segja að þetta er ömurlegt mál. Jón Gnarr má skammast sín.“

Úlfar Bjarki Hjaltason er ósáttur við borgina. „Ég vil segja að þetta er ömurlegt mál. Jón Gnarr má skammast sín.“ Mynd Sigtryggur Ari

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
07:15 › 10. janúar 2012

Þroskahamlaðir starfsmenn á Bjarkarási og Lækjarási, munu frá og með næstu mánaðarmótum þurfa að greiða 610 krónur fyrir hverja máltíð sem þeir borða á meðan þeir nota dagþjónustuna. Þetta er nýtt gjald enda hafa starfsmenn hingað til ekki þurft að greiða fyrir máltíðirnar. Eftir að breytingarnar taka gildi munu launin sem starfsmenn með takmarkaða vinnugetu fá fyrir vinnu sína, í sumum tilfellum ekki duga fyrir matnum. Á móti kemur hins vegar að þeir fá greiddar örorkubætur. Þessi ákvörðun borgarinnar kostar hins vegar hvern þroskahamlaðan starfsmann á vinnustofunum um 12 þúsund krónur aukalega á mánuði, miðað við eina máltíð á dag. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur segir að þroskahamlaðir eigi að borga fyrir matinn sinn eins og aðrir. Á starfsdegi í haust hafi verið ákveðið að leggja þetta gjald á.

Þessi ákvörðun Reykjavíkurborgar hefur mælst mjög illa fyrir hjá sumum þroskahömluðum starfsmönnum Bjarkaráss. Úlfar Bjarki Hjaltason er einn þeirra. Hann getur ekki leynt vonbrigðum sínum með ákvörðunina og segist vera mjög reiður yfir þessari ákvörðun borgarstjórnar. Hann hefur alltaf verið mjög ánægður á Bjarkarási, en nú er honum gróflega misboðið. „Ég vil segja að þetta er ömurlegt mál. Jón Gnarr má skammast sín. Hann er búinn að eyðileggja fyrir okkur matinn í vinnunni. Þá er hann búinn að setja okkur alveg niður. Þetta er hans mál!“ segir hann og leggur mikla áherslu á orð sín.

Í DV í dag er fjallað mun nánar um ákvörðun borgarinnar og rætt við Björk Vilhelmsdóttur, formann velferðarráðs Reykjavíkur sem segir borgina ekki vera að seilast ofan í vasa þeirra sem minnst mega sín. „Við erum að vinna samkvæmt samningi Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að allir séu meðhöndlaðir eins. Mér finnst það bara sjálfsagt að leggja þetta gjald á.“

Meira »
Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.