Japanska tæknifyrirtækið Sony ætlar að markaðssetja þrívíddar-sjónvarpsgleraugu í nóvember næstkomandi. Gleraugun voru fyrst kynnt á CES-ráðstefnunni, sem haldin var í Las Vegas í janúar, en gleraugun hafa fengið heitið HMZ-T1. Þau fara fyrst á markað í Japan 11. nóvember.
Hönnunin hefur tekið nokkrum breytingum frá því að gleraugun voru fyrst kynnt til sögunnar. Gleraugun eru þó ennþá búin 1280x720 upplausnar, 0,7 tommu OLED-skjám fyrir hvort auga. Með þessari upplausn er eins og horft sé á 750-tommu skjá úr tuttugu metra fjarlægð.
Til samanburðar er langstærsta bíótjald á Íslandi, í Sal 1 í Sambíóunum í Egilshöll, um það bil 872 tommur að stærð. Gleraugun eru einnig búin öflugu hljóðkerfi en í gleraugunum eru innbyggð heyrnartól. Upplifunin ætti því að komast nálægt því að vera í kvikmyndahúsi.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
