Pólski maðurinn sem lést í fangaklefa lögreglunnar á Suðurnesjum í byrjun vikunnar var 33 ára gamall. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent fjölmiðlum tilkynningu vegna málsins þar sem fram kemur að við reglubundið eftirlit lögreglu með með manninum um klukkan 23:20 á mánudagskvöld hafi maðurinn ekki svarað áreiti og kom ekki til meðvitundar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lögreglu og sjúkraflutningamanna.
Læknir sem kvaddur var á staðinn úrskurðaði manninn látinn.
Líkt og DV greindi fyrst frá í morgun hafði lögreglan haft afskipti af manninum vegna mikillar ölvunar og var hann handtekinn og færður í fangaklefa þar sem hann lést.
„Lögreglustjórinn á Suðurnesjum óskaði eftir því við ríkissaksóknara að öðrum lögreglustjóra yrði falin rannsókn þessa voveiflega andláts og fól ríkissaksóknari lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu a annast rannsókn málsins og er sú rannsókn á frumstigi,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Sjá einnig:

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013