ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Hraðara internet

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
15:50 › 7. september 2011
Tæknirisinn Google er meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í verkefninu.

Tæknirisinn Google er meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í verkefninu. Mynd Reuters

Nokkur fyrirtæki hafa hafið samvinnu sem á að leiða til hraðara internets. Meðal fyrirtækjanna sem taka þátt í verkefninu eru OpenDNS og Google.

Fyrirtækin ætla að koma því þannig fyrir að þegar þú ferð inn á vefsíðu sem skráð er í margar tölvur víðs vegar um heim fáir þú samband við þá tölvu sem er næst þér. Þannig er vefsíðan eða efnið sem þú sækir á netið fljótari að hlaðast niður í tölvuna þína.

Þegar eru fyrstu vefnotendurnir farnir að finna fyrir þessum mun en vefsíður sem styðjast við OpenDNS og Google Public DNS hafa þegar byrjað að nota nýju tæknina til að ákvarða hvaðan á að sækja upplýsingar sem óskað er eftir í gegnum netvafra.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?