ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Allir viðburðir á sama stað

Nýr íslenskur vefur og viðbætur fyrir snjallsíma
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
15:49 › 6. september 2011
Mynd Gunnar Gunnarsson

Happening er nýtt íslenskt vefsvæði og snjallsímaforrit þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um alla viðburði í nágrenni við þig. Vefurinn var opnaður nýlega og það eru þrír Íslendingar, Ólafur Gauti Guðmundsson, Sveinn Viðarsson, og Ernir Erlingsson, sem standa á bak við verkefnið.

Ólafur Gauti segir að markmiðið sé að vefurinn geti gefið fólki allar þær upplýsingar um viðburði á einum og sama staðnum. „Markmið okkar er að happening.is sé svona one-stop fyrir fólk sem vill sjá allt sem er að gerast á svæðinu, hvort sem það eru tónleikar, ráðstefnur, hátíðir, leiksýningar, galleríopnanir, íþróttaviðureignir, flóamarkaðir og svo framvegis,“ útskýrir Ólafur.

Síðan er ætluð öllum þeim sem eru að leita að viðburðum einhvers staðar á landinu. „Auðvitað einnig fyrir þá sem eru með einhvern rekstur og vilja halda utan um sína viðburði alla á einum stað. Við munum fljótlega bjóða upp á sér „branding“ fyrir hátíðir, ráðstefnur og skemmtistaði til að mynda,“ segir Ólafur.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?