ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Android-símar vinsælastir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:20 › 29. september 2011
Farsímar sem notast við Android-stýrikerfið hafa notið vinsælda undanfarin misseri.

Farsímar sem notast við Android-stýrikerfið hafa notið vinsælda undanfarin misseri.

Snjallsímar sem notast við Google Android-kerfið eru vinsælustu símar Bandaríkjanna. Þetta sýna tölur sem markaðsfyrirtækið Nielsen tók saman yfir sölutölur farsíma frá byrjun júnímánaðar til loka ágúst.

Samkvæmt þeim tölum keyptu 56 prósent Bandaríkjamanna farsíma sem notast við Android. 28 prósent keyptu hins vegar iPhone-snjallsíma. Don Kellogg, einn forsvarsmanna fyrirtækisins, segir þó að viðbúið sé að tölurnar muni breytast þegar iPhone 5 kemur á markað, líklega í næsta mánuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?