ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Facebook njósnar um þig

Þeir sjá hvaða vefsíður þú heimsækir
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:25 › 28. september 2011
Forsvarsmenn Facebook hafa verið harðlega gagnrýndir vegna ýmissa öryggisgalla sem uppgötvast hafa undanfarin misseri.

Forsvarsmenn Facebook hafa verið harðlega gagnrýndir vegna ýmissa öryggisgalla sem uppgötvast hafa undanfarin misseri. Mynd Reuters

Forsvarsmenn samskiptasíðunnar Facebook viðurkenna að upplýsingar um hvaða vefsíður notendur heimsækja hafi verið sendar aftur til fyrirtækisins. Þetta gerðist jafnvel þó að viðkomandi væri ekki skráður inn á Facebook.

Forsvarsmenn þessar vinsælustu samskiptasíðu heims hafa viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða. Hafi netnotandi verið að skoða vefsíður, til dæmis vefsíður sölufyrirtækja, fékk Facebook upplýsingar um það næst þegar viðkomandi skráði sig inn á Facebook.

Það voru tæknigrúskarar sem blogguðu um gallann og hefur verið bent á það að „mistökin“ gætu verið margra milljóna dala virði fyrir Facebook í auglýsingatekjur, þar sem fyrirtækið selur auglýsingar sem beinast að ákveðnum markhópum.

Þegar þú skráir þig inn á Facebook vistar vefsíðan kökur (e. cookies) á tölvuna þína sem fylgjast með netnotkun þinni.

Það var ástralski bloggarinn Nik Cubrilovic sem benti á þennan galla á bloggsvæði sínu. Forsvarsmenn Facebook voru fljótir að bregðast við og þökkuðu Cubrilovic fyrir ábendinguna og segjast nú hafa komið í veg fyrir gallann.

Þrátt fyrir það vistar Facebook enn kökur á tölvuna þína, en samkvæmt forsvarsmönnum fyrirtækisins geta þær ekki sent upplýsingar um netnotkun þína lengur ef þú ert ekki skráður inn á Facebook.

„Jafnvel þó þú sért ekki skráður inn getur Facebook fylgst með því sem þú gerir á netinu. Eina lausnin er að eyða öllum Facebook-kökum í vafranum þínum, eða nota sérstakan vafra fyrir Facebook,“ skrifaði Cubrilovic á blogg sitt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?