ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.5° 9m/s S

Framsókn með snjallsímaforrit

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
12:00 › 2. september 2011

Framsóknarflokkurinn hefur gömul og þjóðleg gildi en hann hefur engu að síður tekið skref sem enginn annar íslenskur stjórnmálaflokkur hefur tekið. Flokkurinn hefur sent frá sér snjallsímaforrit sem gerir áhugasömum Framsóknarmönnum tækifæri til að fylgjast með öllu því nýjasta sem er að gerast í flokknum.

Forritið er í raun einföld efnisveita sem miðlar efni af vefjum flokksins. Það ætti því ekki að reynast öðrum stjórnmálaflokkum erfitt fyrir að koma með skemmtilegri útgáfu af snjallsímaforriti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?